Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Drekar og barnapíur

Biddalitla barnapía er í óða önn að reyna að skipuleggja sumarið. Núna er sú breyting frá fyrri árum að ég vinn ekki lengur aðra hverja viku og er því ekki laus hina vikuna til að passa systkinabörnin sem eru komin af leikskólaaldri og fara því í sumarfrí í júníbyrjun. Það er eiginlega hálfgerð synd, við Janus og Heiðrún höfum skemmt okkur konunglega við hitt og þetta, hjólað út í Gróttu með nesti, farið í Þjóðminjasafnið og ýmislegt fleira undanfarin sumur. Við getum samt vonandi gert eitthvað, frænkan er orðin algerlega háð þessu. En hann Auðun ætlar að bæta úr þessu, sex ára bróðursonur minn. Hann ætlar að vera hjá mér í viku í júní, eða við heima hjá honum eða sitt á hvað, á meðan foreldrar hans og stóra systir skreppa til Danmerkur. Við Auðun erum tengd sterkum böndum, hann vaknaði einu sinni upp af martröð þar sem hann hafði staðið í ströngu við að forða því að hroðalegi drekinn réðist á hana Biddu frænku. Drengurinn var einn til varnar með sitt sverð og blóðbaðið var svakalegt. En Bidda slapp frá drekanum og það er fyrir mestuGrin

Sól sól sól

Heiðrún og Janus sleikja sólina Ó já, sól og hiti, helst bara strax. Sólarvörnin mín er síðan í hitteðfyrra, hversu sorglegt er það að ná ekki að klára einn brúsa á sumri? Og þó að það verði bara í meðallagi, maður biður ekki um meira eftir hryllinginn í fyrrasumar.
mbl.is Hlýindi teygja sig til Íslands - sumarið líklega í meðallagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deep Purple og Uriah Heep

Við systurnar vorum mættar rétt upp úr 8 og þá strax var algerlega pakkað. En við fundum samt góðan stað. Uriah Heep voru byrjaðir og ég get svo svarið það, eins fyndnir og þeir eru í útliti þá voru þeir guðdómlegir. Ég fékk gæsahúð um mig alla þegar þeir spiluðu The Wizard, þá var Biddalitla orðin átta ára aftur og kunni þetta utan að. Hárið á bassaleikaranum er eins og úr Spinal Tap og söngvarinn virtist vera kominn sjö mánuði á leið. En hann söng vel og minnti bara heilmikið á David Byron. Þeir voru betra bandið þetta kvöld.

Jamm, Purple, það vantaði eitthvað. Kannski þreyta, kannski er of mikið að spila tvö kvöld í röð í sínhvoru landinu. Þeir spiluðu vel og það var mikið stuð, en það vantaði útgeislunina. Þetta var dálítið eins og að hlusta á iðnaðarrokk, öll trixin á réttum stöðum og allt eins og vel smurð vél sem er ekki það sem maður vill finna á tónleikum með Deep Purple. Aðalsmerki Gillans er húmor, hlýja og fíflagangur en þetta kvöld var hann bara maður í vinnunni.

Ég er samt ekki hætt að elska Ian Gillan, hann er ekki æskuvinur minn og leikfélagi fyrir ekki neitt. Mig langar meira til að heyra lögin frá sólóferli hans, kannski kemur einhvern tímann tækifærið til að fara á tónleika með Gillan's Inn.


mbl.is Rokkað í Laugardalshöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er fyrir Þengil

Eins og hann lesi þetta! 

 

Þetta er upptaka síðan í fyrrasumar þegar Ian Gillan var 61 árs gamall. Segi svo hver sem er að hann geti ekki sungið! Ókei, hann hefur breyst allnokkuð síðan '72 en hann gerir mörgum skömm til sem voru ekki einu sinni fæddir þá.

Og þeir eru að koma um helgina. Svona hljómuðu þeir fyrir viku síðan og ég er að tapa mér af tilhlökkun.

 


Það hef ég ekki heldur

þess vegna bý ég í VesturbænumLoL
mbl.is Orlando Bloom hefur ekki efni á heimili í London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá, var það ekki komið fyrir löngu?

Abba, stuðhljómsveit bernsku minnar, var aldrei í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér öfugt við næstum allar stelpurnar í bekknum. En þau eiga heiður skilið fyrir mörg góð lög sem hafa lifað í gegnum tíðina. Án þeirra hefðum við farið á mis við gersemina Muriel's Wedding.
mbl.is Abba-safn opnar í Stokkhólmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Duruflé - Vortónleikar Háskólakórsins

plaggat_v07

Á fimmtudagskvöldið verða hinir árlegu vortónleikar Háskólakórsins haldnir í Neskirkju kl. 20. Ég verð ekki meðal söngvara, verð bara í miðasölunni í þetta sinn. Það kostar ekki nema þúsundkall inn, algert gjafverð!


Ég elska John Lennon

Mmmm... spurning um að taka sumarfríið í september...

Þegar ég var 18 ára leigði ég herbergi hjá sjómanni sem var alltaf úti á sjó. Þegar hann kom í land vildi hann fá leiguna borgaða í einhverju öðru en peningum svo að ég kom mér þaðan í snarhasti. Ein sterkasta minning mín frá þessum tíma er af úldnu smjöri sem mér varð á að stelast í og ísskápurinn var fullur af, en karlinn hafði keypt heilan kassa á sérlega hagstæðu verði árið á undan. Lengi á eftir gat ég ekki litið smjör réttu auga. En hann átti helvíti góðar plötur með John Lennon sem ég var búin að hlusta mikið á meðan ég var þarna í friði og sérstaklega lagið Jealous Guy. Hann kom mér upp á að hlusta á Lennon, helvítis karlinn! Síðan hef ég ekki beðið þess bæturInLove

 


mbl.is Skoskt sveitaþorp áformar Lennon-hátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorferð Háskólakórsins

Já, börnin góð. Þar sem frá var horfið var Biddalitla á leiðinni í vorferð á puttanum og gekk það fljótt og vel fyrir sig. Rúta í Borgarnes og fjögur önnur farartæki skiluðu henni á rúmum tveimur tímum í Stykkishólm þar sem nývaknaðir og ferskir Háskólakórsmeðlimir voru að koma sér í gírinn. Ég hef ekki fyrr verið föðmuð af hálfberum karlmanni með þrjátíu sentimetra búrhníf í hendinni, alltaf er eitthvað nýtt. Eftir sundferð og matarinnkaupaferð var búið til dúkku-lasagna þar sem einu formin sem fengust voru í dúkkustærð. Og það var helvíti næs að stinga því í ofninn eftir siglinguna. En fyrst, siglingin!

Samkvæmt vetraráætlun er Suðureyjasiglingin kl. 11 fyrir hádegi en við fengum að fara kl. 17 og höfðum þá bátinn alveg út af fyrir okkur sem var mjög sérstakt. Og þegar við vorum að sigla í land tveimur tímum síðar var eins og það hefði bara korter liðið. Við sáum örn sem gerði sig að steini og neitaði að fljúga fyrir okkur. Við sáum líka ótrúlegar stuðlabergsmyndanir og Gálgagjá þar sem menn voru hengdir til forna og fengu að hanga þar til þeir veðruðust burt! Og svo fengum við að smakka skelfisk en lögðum ekki í krabbana sem voru labbandi út um allt eins og risakóngulær.

Það er gaman að ferðast með fólki sem nennir að koma við og skoða spennandi staði. Aldrei hafði hvarflað að mér að stoppa í Bjarnarhöfn en þar fengum við að skoða skemmtilegt safn þar sem bókstaflega öllu ægir saman og smakka hákarl, harðfisk og reyktan rauðmaga. Bóndinn sagði okkur sögur og sýndi okkur svo kirkjuna sem er hálfgerður töfrastaður. Þar sungum við Vísur Vatnsenda-Rósu, viðeigandi því að Páll Melsted, stóra ástin hennar, er einmitt grafinn þarna rétt við kirkjudyrnar.

Og svo var keyrt, þrír bílar í samfloti. Kvöldmatur beið eftir okkur í Arnarstapa og við skoðuðum brimið á meðan við biðum eftir að maturinn yrði til. Og svo enduðum við á Hofi þar sem fleiri bættust í hópinn. Og það var bara fjör og læti.

Og svo eldsnemma á fætur í morgun, þurfti að koma mér í bæinn. En þau hin eru í þessum skrifuðum orðum á leiðinni í Dritvík til að reyna við steinana, það er alveg nauðsynlegt. Og fara á hestbak eða eitthvað. Stundum væri gott að geta verið á tveimur stöðum í einu.


Þessi helstu vorverk

Í kvöld fer Biddalitla í fertugsafmæli í nýjum kjól. Og ég sem hélt að ég passaði ekki í neitt, ruglið í manni stundum. Afmælisbarnið átti afmæli fyrir tæpu ári en loksins verður partýið, ekki seinna vænna því að á morgun er dagur aldraðra.

Og í fyrramálið fer Biddalitla í vorferð á puttanum, hverslags þjónusta er það eiginlega að rútan í Stykkishólm fer ekki fyrr en kl. 17:30 og Biddalitla ætlar að vera um borð í báti sem siglir út á Breiðafjörðinn stundvíslega kl. 17. Þá verða menn að bjarga sér á fjöllum, ekki satt?

Ég verð að missa af því að sjá hana mömmu mína í Gyðjunni í vélinni, efast ekki um að hún stendur sig vel, mér skilst að hún ætli að búa til slátur.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband