Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Crocs

241 Loksins hef ég eignast crocs og þeir eru líka svona flottir. Það dugir ekkert minna fyrir flækjufót eins og mig. Og svo eru þeir stamir á blautum gólfum, það skiptir öllu. Og svo eru þeir ekki krabbameinsvaldandi og valda ekki brenglun í rafmagnstækjum og eru ekki bannaðir á sjúkrahúsum. Það borgar sig ekki að trúa öllu sem sagt er í fréttum.

Ræðst við eld

"Ræðst" ekki við eldinn? Er venjan að ræða við skógarelda? Stundum þarf að vinna hratt og þá verður mönnum stundum fótaskortur á tungunni. Ég veit um gott ráð við því. Bara prófa að segja setninguna upphátt og heyra hvernig hún hljómar, finna hvernig hún fer í munni. Það kemur yfirleitt betur út.


mbl.is Ekkert ræðst við skógarelda í Kalíforníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æi greyið

Aumingja maðurinn sem ég sá í morgun, liggjandi á útidyrapallinum heima hjá sér. Ég kallaði til hans, ég varð bara að fá að vita hvort allt væri í lagi, hvort hann hefði fengið hjartaáfall eða þursabit eða eitthvað enn verra. Hann horfði á mig tómum augum eins og hann hefði aldrei séð mig áður og þá tók ég eftir að hann var hlandblautur. Smám saman rann upp fyrir mér að maðurinn var bara svona dauðadrukkinn. En hann tók aðeins við sér og virtist vera að reyna að setjast upp, þá fyrst gat ég haldið áfram í vinnuna. Ég ætla rétt að vona, hans vegna þar sem þetta er nú nágranni minn og ósköp indæll náungi, að hann muni þetta ekki þegar hann vaknar.

Kristófer fótboltakappi

Það var gríðarlega áhugasamur fótboltamaður í 7. flokki á Álftanesi sem fór á Blönduós um helgina til að keppa á sínu fyrsta móti með mömmu, ömmu og litla bróður með í för. Engum sögum fer enn af árangri (ég ætti kannski að hringja í VallýWink ) en það er enginn vafi að þetta verður dýrmæt reynsla þegar fram líða stundir. Kristófer
mbl.is Smábæjarleikar á Blönduósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lapland - kjöltuland

Afi yrði svooo stolturDevil  Annars er Pamela greinilega ekki búin að hugsa þetta til enda, það er helvíti kalt í Lapplandi og loðfeldirnir gætu alveg komið að gagni. Og gætu jafnvel gert sig í hitanum í Laplandi. Dásamlegt alveg hreint...
mbl.is Pamela Anderson ætlar að opna súlustaðakeðjuna „Lapland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenrétti

Hannes_Hafstein

Ég veit ekki alveg af hverju ég á svona erfitt með að þola umræður um femínisma. Það er eitthvað sem pirrar mig verulega. Nú er ég að sjálfsögðu hlynnt jafnrétti kynjanna, mér finnst það sjálfsagðara en orð fá lýst. En eitthvað er það sem virkar ekki. Í fyrradag átti ég spjall við unga dömu sem er sannfærður femínisti, allt í góðu með það. En þegar ég benti henni á þátt Hannesar Hafstein í því að konur fengu kosningarétt árið 1915, sem ég sjálf hafði ekki hugmynd um áður en ég fór að læra sagnfræði, þá var svar hennar það að einhver kona hlyti að hafa sagt honum að gera það, að hann hefði m.ö.o. ekki getað hafa haft sjálfur þessa hugsjón. Hannes Hafstein og Bríet Bjarnhéðinsdóttir voru nánir vinir og hann mótaði hana ekkert síður en hún hann, til dæmis með áhrifum frá Georg Brandes. Hann flutti frumvarp árið 1911 um jafnan rétt kvenna og karla til embætta og námsstyrkja og hann var fyrstur til að halda því fram að konur gætu orðið prestar. Og þá skildi ég af hverju ég verð stundum pirruð, það er þessi einstrengingsháttur sem mér finnst svo fráhrindandi. Karlmenn eru ekki alslæmir og lífið er ekki bara svart og hvítt.


Undrabarn

Þetta er sú ótrúlegasta barnsrödd sem ég hef heyrt. Ég hef kynnst mörgum sex ára börnum sem hafa gullfallegar raddir en þau eru varla farin að halda lagi á þessum aldri. Það verður gaman að sjá hvað verður úr Connie litlu Talbot þegar hún verður stærri ef hún fær að þroskast í friði. Hún er ekki bara lagviss, hún syngur af ótrúlegri tilfinningu sem hittir beint í hjartastað. Og það er mikil list.


Orri orri jó

Það gerðist hér eitt sinn í útkjálkasveit, úúúú (sungið með draugalegum tón)

að koma skyldi skyndauðum í kristinna manna reit. 

Orri orri jó, orri orri jó, orri orri orri orri orri orri jó

Sorgmæddar hræður þar sáust í för, úúú...

en sagt var að ekkjan hefði sigurbros á vör.

Orri orri jó...

Er fylgdin var komin í kirkjugarðshlið, úúú...

reis líkið upp og stundi, æ, staldrið þið við.

Orri orri jó...

Lifandi er ég og útförin plat, úúú...

við löbbum okkur heim því mig langar í mat.

Orri orri jó...

Þá mælti ekkjan í óblíðum tón, úúú...

að þú skulir ekki kunna að skammast þín, Jón.

Orri orri jó...

Ligg þú í kistu sem líki ber, úúú...

betur trúi ég lækninum en bullinu í þér.

Orri orri jó...

Ég hef ekki græna glóru um höfundinn að þessari dásemd en þetta var mikið sungið á mínu bernskuheimili. Minnir að það hafi verið með söngsveit sem hét Náttúrubörn. Og þetta er alveg skrifað eftir minni, kannski er það kolvitlaust. Getur einhver upplýst mig?


mbl.is Vaknaði upp í eigin jarðarför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súperfrænka í viku

Eins og börn eru yndisleg þá er ósköp gott að geta skilað þeim aftur. Sveinbjörn bróðir "gleymdi" að segja mér frá því að það væru þrír kettlingar komnir á heimilið og að sjálfsögðu þurfti að sinna þeim. Og svo hætti Einar við að fara að heiman því að frænkan er svo skemmtileg, ég skil hann vel. Þannig að súperfrænkan hafði yfirumsjón með sex og ellefu ára bræðrum og fimm köttum að auki. Það gekk bara vel, en svo þurfti ég að fá pössun...

Það er gaman að vera súperfrænka, maður fær botnlausa aðdáun frá smáfólkinuWizard. Auðuni fannst ekkert smá flott að Bidda frænka væri í Háskólakórnum og væri að fara að syngja við útskrift í Háskólanum. hann spurði hvort við ætluðum ekki að syngja Jesús er besti vinur barnannaHalo, það er nefnilega uppáhaldslagið hans.

Og svo skildi ég bræðurna eftir eina heima hjá mér með snakk og vídeó á meðan ég skrapp í útskriftarveislu til Hörpu, ég gat bara ekki misst af fyndnasta atriði í heimi. Jamm, er nokkur eins hamingjusamur og Sigga og Grétar í StjórninniWhistling, ég bara spyr? Og af hverju er enginn búinn að setja inn myndir sem ég get stolið?

Og sautjándinn, toppurinn á tilverunni. Sveinbjörn og Ingunn komu heim frá Danmörku snemma morguns og þurftu að fá að sofa eitthvað, þess vegna sváfu Einar og Auðun heima hjá mér og þegar við vorum loksins búin að koma okkur í gang, baka köku og fleira, fórum við út á Álftanes til Vallýar systur þar sem við eyddum deginum við fjör og læti. Og svo kom Frikki bróðir með óléttu kærustuna sína, þá vorum við orðin 10 saman fyrir utan "farþegann" sem er strákur, ég rakst á dömuna í dag þegar hún var að koma úr sónar og það er ekkert verið að þegja yfir leyndarmálinuCool.

Og svo var kominn tími til að heilsa upp á ferðalangana og skila börnum og bíl. Þau gáfu mér undurfallegt rafhálsmen frá Skagen og fleira gott og svo fórum við öll saman í matarboð, notalegur endir á æðislegri viku. En það er ósköp notalegt að þurfa ekki að redda meiri pössun...


Hvað er aðalatriðið?

Ætli það sé lykilatriði í þessari frétt að fjölskyldan var af asískum uppruna? Veit einhver um Asíuland þar sem það tíðkast að foreldrar drepi börnin sín ef þau eru þeim ekki þóknanleg? Mér finnst það liggja í augum uppi að þessi maður hefur ekki gengið heill til skógar og ef þetta hefur eitthvað með innflytjendamál að gera þá er það vegna þess að samfélagið hefur ekki vitað af heimilisofbeldinu sem þessir bræður bjuggu við eða einfaldlega skrifað það á reikning "asísks uppruna".
mbl.is Myrti 12 ára gamlan son sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband