Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
Ef hægt er að segja eitthvað jákvætt um þetta
31.1.2008 | 13:00
|
Myndband sem sýnir Ledger neyta kókaíns |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Skrýtið
30.1.2008 | 22:56
Maður klæðir sig í úlpu, húfu, kuldaskó og allan pakkann og arkar í snjónum sem leið liggur í Vesturbæjarlaugina. Þar klæðir maður sig úr öllu, fer í sturtu og svo í sundbol og hleypur svo út rennandi blautur, berfættur í sundbol einum klæða. Heiti potturinn er eins langt frá dyrunum og hægt er að vera svo að það reynir á að vera í einum blautum sundbol. Í nákvæmlega sömu veðurskilyrðunum og hinum megin við húsið, þar sem maður kom inn í úlpu og öllu.
Mannvitsbrekkurnar valda mér aldrei vonbrigðum. Nú er það ljóst að ef 30 prósent þjóðarinnar teljast vera skrýtin þá telst það ekki lengur vera skrýtið, heldur telst það vera tiltölulega normalt. Sem minnir mig á að ég hef heyrt að nánast öll íslenska þjóðin sé haldin geðhvarfasýki 2, það er heilkennið sem lætur okkur móðgast upp úr skónum þegar einhverjir Danir voga sér að gagnrýna íslensku útrásina, þessir öfundsjúku Danir. Og fyllast af þunglyndi og vonleysi yfir því að við skulum aldrei vinna Eurovision, klíkuskapurinn alltaf hreint. Og frægasti heimilislæknir landsins þessa dagana fær ekki inngöngu í Félag geðveikra heimilislækna þar sem Sveinn Rúnar Hauksson ríður rækjum, það heyrði ég í pottinum og þá er það auðvitað heilagur sannleikur.
Ég er að horfa á þennan slóvenska heimspeking í Kiljunni og ég næ engu sem hann segir, maðurinn er á slíkum ljóshraða. Herfilega er hann ljótur. En krafturinn sem stafar frá honum, ég get alveg skilið nærfatamódelið sem hann er giftur. Gáfur eru nefnilega helvíti sexí, það hef ég alltaf sagt. Ég held að ég verði bara að lesa bókina hans, og það á mínum eigin hraða.
Bloggar | Breytt 31.1.2008 kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fallega og gáfaða fólkið skemmtir sér
29.1.2008 | 23:45
Herregud, ég vissi ekki að ég gæti verið svona svakalega gáfuleg í framan. Og nú er búið að festa það á mynd um aldur og ævi. Maður verður svo gáfaður af því að umgangast fólkið í Háskólakórnum
Bloggar | Breytt 30.1.2008 kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Of miklar bókalyftingar
29.1.2008 | 23:16
Sko, ég hef ekki verið að standa mig í ræktinni. Ég ætlaði að fara að stunda hlaup þegar ég veiktist, og svo kom snjórinn og blablabla...
Allavega, einu lyftingarnar sem ég hef stundað undanfarið eru bókalyftingar. Já, ekki einu sinni glasalyftingar... Jú, kannski einstaka dósalyftingar. En það er ekki málið sem um ræðir.
Mér er alveg helvíti illt. Og það í einhverjum vöðvum sem ég hef sennilega aldrei á ævi minni notað fyrr. Á einni viku um miðjan desember kjalmerkti ég hverja einustu bók í Orðabók Háskólans, og þá erum við að tala um Brittanicu í öllum 34 eintökunum, Kulturhistorisk Leksikon, Orðabók sænsku Akademíunnar og margt fleira, sem sagt ekki bara margar bækur heldur hrikalegir doðrantar. Ég gekk svo gersamlega fram af mér að ég var sárkvalin í heila viku í vinstri handleggnum og brjóstvöðvunum og bruddi íbúfen eins og smartís. Maður tekur bókina jú alltaf með vinstri úr bókahillunni. Ég var búin að koma mér upp sérstakri tækni til að taka bókina með báðum höndum í einu til að vera ekki alltaf með vinstri handlegginn í þessu. Og bara út af þrjóskunni, ég ætlaði mér að klára þetta verkefni áður en ég hætti. Ég rétt svo náði verkjunum úr mér fyrir jól. En svo er ég alltaf að fá þessa verki aftur og núna er ég alveg að kálast. Getur maður í alvöru náð sér í svona heiftarlega vöðvabólgu á einni viku að mánuði síðar sé maður ennþá fastur í smartísinu?
Ég held að ég verði bara að fara að æfa brjóstvöðvana, Dollý hvað! Eða bryðja meira íbúfen og fara í heita pottinn í Vesturbæjar. Maður er nú aldrei svikinn af því að hlusta á mannvitsbrekkurnar þar...
En smartísið virkar og ég er hætt að finna til, þetta er náttúrlega bara venjuleg vöðvabólga, maður er kominn með hálfgert ofsóknaræði af öllum þessum sjúkdómseinkennum. Nýjasta nýtt er að það á að rannsaka blóðflæðið í heilanum á mér. Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gennaio vent'otto
28.1.2008 | 21:20
Þetta var nú bara nokkuð góður dagur hjá Biddunni. Að vísu er hann ekki búinn, ég á eitt MJÖG erfitt verkefni eftir en þessi erfiðu verkefni hafa sem betur fer tilhneigingu til að skreppa saman þegar maður ræðst á þau.
Ég mætti í Neskirkju kl. 11 ásamt Hörpu þar sem við fengum söngkennslu. Raddirnar okkar voru ennþá steinsofandi en við lærðum allavega að vera voða hissa í framan, það teygir svo vel á raddböndunum
Svo fór ég í heimsókn í vinnuna en hitti því miður ekki yfirkonuna, verð því að fara aftur á morgun. En ég gat allavega óskað honum Jósep til hamingju með afmælið í gær.
Og svo á Hlöðuna þar sem ritgerðin mín komst á flug. Ja, kannski ekki flug en ég vil allavega trúa því
Tók svo fullt af bókum með mér heim.
Og svo var hápunktur dagsins: Við Sveinbjörn bróðir ásamt Einari, 11 ára syni hans, skelltum okkur saman á Brúðgumann. Gaman að geta loksins gert eitthvað svona saman. Frábær mynd, við hlógum eins og vitleysingar. Feðgarnir voru tímabundnir svo að við urðum að sleppa því að fara á kaffihús á eftir, því miður, en kannski sem betur fer fyrir budduna mína. Svo að það var bara hefðbundið dúkkulasagna úr frystinum í kvöldmat með gommu af rucola, svörtum ólífum og parmesan. Namm!
Og núna er ég komin heim, Lennonlögin í spilaranum og allt í kertaljósum og kósí. Ég nota svo mikið af kertum, ég ætti eiginlega að reyna að kaupa þau í heildsölu. Um daginn voru sprittkertin uppseld í Nóatúni og það var eiginlega alveg voðalegt.
En ég þurfti víst að gera eitthvað...
Adios, amigos!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
The day after the night before
27.1.2008 | 14:29
Hausinn minn er þungur og aumur og það er einkennileg ólga í maganum.
Já, stundum verður maður bara að fórna sér fyrir málstaðinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nú eru þorrablót, fyllirí, fyllirí...
26.1.2008 | 15:17
Og ég sem er að fara í partý í kvöld þar sem verður nóg að drekka en sennilega engir pungar, ekki af sauðakyni allavega ... það þarf að bjóða nýliðana velkomna, maður getur nú svosem fórnað sér í það ... ég er nefnilega mjög góðhjörtuð sál


The Value of Drink
'Sometimes when I reflect back on all the wine I drink
I feel shame. Then I look into the glass and think
about the workers in the vineyards and all of their hopes
and dreams . If I didn't drink this wine, they might be out
of work and their dreams would be shattered.
Then I say to myself, 'It is better that I drink this wine and let their
dreams come true than be selfish and worry about my liver.'
~ Jack Handy
WARNING: The consumption of alcohol may leave you wondering what the hell
happened to your bra and panties.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
'I feel sorry for people who don't drink. When they
wake up in the morning, that's as good as they're
going to feel all day. '
~Frank Sinatra
WARNING: The consumption of alcohol may create the illusion that you are tougher, smarter, faster and better looking than most people.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
'When I read about the evils of drinking, I gave up reading.'
~ Henny Youngman
WARNING: The consumption of alcohol may lead you to think people are laughing WITH you.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
'24 hours in a day, 24 beers in a case. Coincidence? I think not.'
~ Stephen Wright
WARNING: The consumption of alcohol may cause you to think you can sing.
~ ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
'When we drink, we get drunk When we get drunk,
we fall asleep. When we fall asleep, we commit no sin.
When we commit no sin, we go to heaven. So, let's all
get drunk and go to heaven!'
~ Brian O'Rourke
WARNING: The consumption of alcohol may cause pregnancy.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
'Beer is proof that God loves us and wants us to be h appy.'
~ Benjamin Franklin
WARNING: The consumption of alcohol is a major factor in dancing like a retard.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
'Without question, the greatest invention in the
history of mankind is beer. Oh, I grant you that the
wheel was also a fine invention, but the wheel does
not go nearly as well with pizza.'
~ Dave Barry
WARNING: The consumption of alcohol may cause you to tell your friends over and over again that you love them
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
To some it's a six-pack, to me it's a Support Group. Salvation in a can!
~ Dave Howell
WARNING: The consumption of alcohol may make you think you can logically converse with members of the opposite sex without spitting.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
And saving the best for last, as explained by Cliff Clavin, of Cheers.
One afternoon at Cheers, Cliff Clavin was explaining the Buffalo Theory to his buddy Norm.
Here's how it went:
'Well ya see, Norm, it's like this... A herd of buffalo can only move as fast as the slowest buffalo. And when the herd is hunted, it is the slowest and weakest ones at the back that are killed first This natural selection is good for the herd as a whole, because the general speed and health of the whole group keeps improving by the regular killing of the weakest members In much the same way, the human brain can only operate as fast as the slowest brain cells. Excessive intake of alcohol, as we know, kills brain cells. But naturally, it attacks the slowest and weakest brain cells first. In this way, regular consumption of beer eliminates the weaker brain cells, making the brain a faster and more efficient machine. That's why you always feel smarter after a few beers.'
WARNING: The consumption of alcohol may make you think you are
whispering when you are not.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
IKEA hefur ákveðið að fara að selja bíla
24.1.2008 | 21:08
Þeir koma að sjálfsögðu ósamsettir en það fylgir mjög góður leiðarvísir. Núna geta allir eignast sinn bíl, loksins eitthvað fyrir Bidduna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hvar á hnettinum er eiginlega þetta Bananalýðveldi?
24.1.2008 | 16:08
Jólin búin, Næturvaktin búin, ekkert við að vera í svartasta skammdeginu, landsliðið tapar og tapar og ennþá langt í Eurovision, meir að segja Fischer geispar golunni. En þá kemur pólitíkin til að bjarga okkur frá leiðindunum.
Hér er meira um þetta mál.
|
Hávær mótmæli í Ráðhúsinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 27.1.2008 kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heath Ledger og Nick Drake
23.1.2008 | 23:43
Það er margt svipað með brottför þeirra úr þessum heimi. Eftir meira en 30 ár er fólk ennþá ósammála um hvort Nick Drake framdi sjálfsmorð eða tók óvart of margar töflur. Það trúði því enginn upp á hann þrátt fyrir að hann var búinn að vera mjög veikur á sálinni. Þannig virðist það líka ætla að verða með Heath Ledger.
Þrátt fyrir veikindin gat Nick Drake samið þessa undursamlegu tónlist sem virðist ekki geta elst, hver myndi trúa því að þetta lag væri frá árinu 1970?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

asgerdurjoh
aslaugosk
atvinnulaus
biddam
birgyrr
birnapala
bjarney
doddiheimur
don
ernamaria
gattin
gledibankinn
gudmundurmagnusson
gurrihar
harpahrund
hronnsig
hross
ipanama
jenfo
jonaa
larahanna
nanna
neytendatalsmadur
olinathorv
omarragnarsson
palmig
rafgeymar
ragnarfreyr
rene
saran
skralli
stebbifr
thorsaari
toshiki
ugla
zordis






