Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Það kvöldar snemma

IMG_2666_edited

Svona er útsýnið til vesturs, Lagarfljótið og Snæfell lengst í burtu. Klukkan er sex og það er alveg að verða dimmt.

Ég á að vera mætt í Valaskjálf í smink, best að drífa sig. Spennandi að sjá hvernig aðsóknin verður, á þeim þremur sýningum sem búnar eru hefur aðsóknin ekki náð hundrað manns. Egilsstaðabúar eru ekki fyrir að sækja leikhús og hrepparígurinn gerir að verkum að það hvarflar ekki að íbúum niðri á fjörðum að láta sjá sig. Merkilegt fyrirbæri, þessi hrepparígur.

Ég fékk svínaflensusprautu í gær og er handlama síðan. Og ég sem á að sveifla handleggjunum eins og skáti á íþróttaæfingu í kvöldLoL


Það er eitthvað verulega bogið við þetta

Þetta er skrýtið. Ætli myndin af honum hafi verið birt af því að hann er Lithái? Hvernig ætli það sé fyrir hann að skreppa í Bónus eða hvað sem er þessa dagana?

Ef lögreglan getur ekki gefið því betri ástæður fyrir þessari myndbirtingu ætti þessi maður að fara í mál. Hann fengi sennilega háar skaðabætur.

Eða hvað segir það um viðhorf okkar til Litháa að það sé sjálfsagt að birta myndir af þeim og tengja við mansal, njóta þeir ekki mannréttinda eins og aðrir?


mbl.is Ekki lengur grunaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hlæhlæhlæ


Frumsýning í kvöld

Generalprufan í gær og nú er þetta allt að bresta á. Sýningar þessa helgi og þá næstu en svo veit maður ekki meir hvað verður.

7318_1238051465187_1046259133_773734_3420289_n

Virðuleg hjón að rappa um hjólhýsi og aðrar lífsnauðsynjarTounge


Það kólnar

IMG_2482

Þetta blasti við í morgun. Fallegt, ekki satt?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband