Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
Ég er svo ofsalega feimin að...
27.4.2009 | 18:14
ég tapaði mér algerlega þegar ég uppgötvaði þetta fína lyf við feimni, óákveðni og tilfinningunni um að vera ekki alveg nógu góð. Það var prufukeyrt um helgina.
Women’s Health Alert :
Do you have feelings of inadequacy?
Do you suffer from shyness?
Do you sometimes wish you were more assertive?
If you answered yes to any of these questions, ask your doctor or pharmacist about Margaritas.
Margaritas are the safe, natural way to feel better and more confident about yourself and your actions.
Margaritas can help ease you out of your shyness and let you tell the world that you're ready and willing to do just about anything.
You will notice the benefits of Margaritas almost immediately and with a regimen of regular doses you can overcome any obstacles that prevent you from living the life you want to live.
Shyness and awkwardness will be a thing of the past and you will discover many talents you never knew you had.
Stop hiding and start living, with Margaritas.
Margaritas may not be right for everyone. Women who are pregnant or nursing should not use Margaritas.
However, women who wouldn't mind nursing or becoming pregnant are encouraged to try it.
Side effects may include:
- Dizziness, nausea, vomiting, incarceration
- Erotic lustfulness
- Loss of motor control
- Loss of clothing
- Loss of money
- Loss of virginity
- Attraction to the same sex
- Table dancing
- Headache
- Dehydration
- Dry mouth
- And a desire to sing Karaoke
WARNING:The consumption of Margaritas may make you think you are whispering when you are not.
WARNING:The consumption of Margaritas may cause you to tell your friends over and over again that you love them.
WARNING:The consumption of Margaritas may cause you to think you can sing.
WARNING: The consumption of Margaritas may make you think you can logically converse with members of the opposite sex without spitting.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það var ekki seinna vænna að athuga hvar ég er á kjörskrá
24.4.2009 | 13:24
Í dag eru síðustu forvöð að kjósa utan kjörstaðar ef ég skyldi vera ennþá á Sólvallagötunni.* Ég meina, það er yfirleitt alltaf miðað við hvar maður var 1. desember síðastliðinn og ég skráði mig ekki hér fyrr en um mánaðamótin jan/feb. En það dugir og ég er hér. Þá verður þetta einfalt á morgun.
Og ég er meir að segja búin að ákveða mig, ég ætla að kjósa Borgarahreyfinguna. Ég hreifst strax af þeim en var svolítið hrædd um að atkvæðið mitt félli dautt niður er þau næðu ekki manni inn. Það breytir öllu að þau mælast núna með 3-4 þingmenn, þá kýs ég þau.
Það verður í fyrsta skipti sem ég kýs ekki Samfylkinguna eða forvera hennar Alþýðubandalagið. Steingrímur J. stofnaði Vinstrigræna þegar hann tapaði fyrir Margréti Frímannsdóttur í formannskjöri og mér hefur alltaf leiðst að sjá þessa tvo vinstriflokka bíta hvor annan á barkann í stað þess að vinna saman. Mig langar bara til að sjá einhverjar breytingar og það er enginn ferskari en Borgarahreyfingin. Það verður allavega spennandi að sjá hvort þau ná að breyta einhverju.
*Ég veit svosem ekki hvort síðustu forvöð eru í dag, ég hef aldrei kynnt mér það. Ég veit bara að á morgun gæti orðið erfitt að koma einu atkvæði frá Egilsstöðum til Reykjavíkur til að fá það talið með.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta verður bæði erfitt og sársaukafullt
22.4.2009 | 15:14
Það var blóðugt að horfa upp á það á sínum tíma þegar ákveðnir einstaklingar fengu fiskveiðiheimildirnar afhentar á silfurfati, oft á kostnað sjávarþorpanna sem máttu sjá á bak þeim sömu heimildum. Önnur eins búseturöskun hefur ekki orðið á seinni árum en hvað eiga íbúar að gera í þorpum sem eiga engan kvóta, annað en að koma sér í burtu? Halldór Ásgrímsson er dæmi um mann sem hagnaðist vel á þessu þar sem fjölskyldufyrirtæki hans á Hornafirði fékk mikinn kvóta gefins. Þessir nýríku einstaklingar seldu síðan kvótann og mökuðu vel krókinn. Þeir sem eiga kvótann í dag hafa borgað himinháar fjárhæðir fyrir hann - sem hafa runnið beint í vasa þeirra fyrstnefndu. Það væri því frekar óréttlátt að taka kvótann eignarnámi án þess að eitthvað komi í staðinn.
En hvað á að gera? Ekki veit ég.
|
Segja fyrningu aðför að 32 þúsund fjölskyldum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Einu sinni voru tvær sætar systur
18.4.2009 | 17:01
sem fengu þessar líka flottu dúkkur í jólagjöf. Það var sungið fyrir þær, ort til þeirra, gefið endalaust að borða og komu þar sykurmolar sterkir inn og gilti þá einu að munnarnir á Ernu og Lísu voru svolítið litlir, þeir voru bara stækkaðir...
Takið eftir bláa jólatrénu og englahárinu, ég vildi gjarnan eiga þetta tré í dag en því hefur ábyggilega verið hent.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Með kveðju frá Al-Waleed
13.4.2009 | 12:28
Sigga situr við skriftir í Damaskus, búin að heimsækja flóttamannabúðirnar í Al-Waleed og skrifar nú sögu flóttakvennanna sem komu þaðan og eru nú á Akranesi. Þessar konur eru tvöfaldir flóttamenn, fyrst flúðu foreldrar þeirra til Íraks þegar Ísraelsríki var stofnað 1948 og síðan út í eyðimörkina eftir fall Saddams Hussein. Annars er best að lesa bara greinina hennar Siggu í New York Times, hún skýrir þetta betur en nokkur annar:
http://www.nytimes.com/2009/04/11/opinion/11iht-edjonsdottir.html?_r=1
Ég hlakka til þegar bókin kemur út, ég efast ekki um að Sigga gerir efninu góð skil.
Hér er bloggið hennar Siggu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Páskasnjór
11.4.2009 | 09:16
Heyrðu, ég er bara á topp tíu á moggablogginu!!! Það verður nú samt ekki lengi, ég var í sjötta sæti þegar ég opnaði tölvuna og fór fljótt niður í áttunda. Ég var að kíkja til sjá hvort ég væri dottin út en þá er ég allt í einu komin í efsta. Það verður samt ekki lengi. Ég tengdi á eina frétt í gær og það lásu hana yfir 1700 manns.
Hér á Egilsstöðum er allt orðið hvítt, og ég sem hélt að vorið væri að koma. Og ég á eftir að fara og versla og var fyrirfram alveg ákveðin í að fara á hjólinu, það var líka allt orðið autt. En nú er ég hreint ekki viss. Ætli ég taki ekki bara röltið.
Ég er orðin svo innilega leið á þessum snjó, enda hefur verið snjóhella yfir öllu í allan vetur. Maður verður víst að bíta á jaxlinn aðeins lengur. Ég veit samt um nokkra sem gleðjast, Bjarni Magnús hennar Fanneyjar er kominn austur í páskafrí með brettið sitt, hann var búinn að bíða spenntur og fylgjast með rigningunni hér, hvort það yrði nokkur snjór eftir. En svo fór bara aftur að snjóa. Það er gott að einhver getur glaðst yfir því
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stúlkan er 19 ára, hún er rétt svo af barnsaldri. Hér er um að ræða fyrrverandi kærasta hennar sem fær félaga sinn til að hjálpa sér að lemja hana. Hér hef ég lesið bloggfærslur og komment um smekk hennar á karlmönnum og annað álíka huggulegt, jafnvel ágiskanir um að þetta hafi verið fíkniefnauppgjör. Gróa á Leiti er komin alveg á fullan skrið og skrattanum er skemmt.
Hvernig væri nú að sýna smávegis aðgát í nærveru sálar þar sem eitthvað við þessa frétt nær að kitla ímyndunarafl fólks svona hrikalega? Er ekki bara auðvelt að setja sig í spor þessarar 19 ára stúlku sem hefur orðið fyrir svona hræðilegri reynslu? Fyrir alla muni ekki leyfa blogg við þessa frétt.
|
Gengu í skrokk á 19 ára stúlku |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Allt fyrir ástina...
8.4.2009 | 16:56
Þórður og Svava eru að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmæli sitt. Þórður segir við Svövu. "Hefurðu nokkurn tíma haldið fram hjá mér?" Svava svarar: "Þórður! Hvers vegna ertu að spyrja svona spurningar núna"? "Jú, Svava, ég verð að vita það," svarar Þórður. Svava segir: "Allt í lagi, ég hef haldið þrisvar fram hjá þér." "Þrisvar, hvenær var það?" spyr Þórður. Svava segir: "Manstu Þórður þegar þú varðst 25 ára og vildir stofna fyrirtækið og bankastjórinn neitaði þér um lán? Svo kom bankastjórinn sjálfur einn daginn með lánspappírana svo þú gætir skrifað undir." Þórður svarar: "Ó, Svava, þú gerðir þetta fyrir mig, ég virði þig bara meira en áður. Hvenær var svo annað skiptið?" Svava segir: "Manstu þegar þú fékkst hjartaáfallið og enginn læknir vildi skera þig vegna þess að aðgerðin var svo hættuleg? Svo kom allt í einu dr. Bjarni yfirlæknir og framkvæmdi aðgerðina sjálfur og þú náðir þér alveg." "Ég trúi þessu ekki," sagði Þórður, "þú gerðir þetta til að bjarga lífi mínu. Ég gæti ekki átt betri konu. Þú hlýtur að elska mig mjög mikið fyrst þú gerir allt þetta fyrir mig. Hvenær var svo þriðja og síðasta skiptið?" "Þórður, þú manst að fyrir nokkrum árum langaði þig til að verða formaður í golfklúbbnum og þig vantaði 18 atkvæði til að ná kjöri..?"
Ég ætla núna að einbeita mér að hinni síðunni í bili og þá vil ég ekki hafa eitthvert stjórnmálaþras hér, þessi færsla mun nefnilega standa frekar lengi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Stjórnmála - óþol
7.4.2009 | 23:07
Ég reyndi hvað ég gat til að fylgjast með Eldhúsdagsumræðunum. Ég reyndi virkilega. En slökkti mjög fljótlega. Aldrei gæti ég fengið mig til að taka þátt í stjórnmálum og satt að segja get ég ekki tekið mark á neinum einasta stjórnmálamanni. Allavega mjög fáum. Kannski í mesta lagi Jóhönnu. Það verður gott að koma þessum kosningum frá.
Jájá, einhver þarf að fórna sér í þetta. Ég gæti það aldrei.
Og fréttin í kvöld um 30 milljónirnar frá FL Group til Sjálfstæðisflokksins, er það skrýtið að maður grænki í framan þegar stjórnmál ber á góma?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

asgerdurjoh
aslaugosk
atvinnulaus
biddam
birgyrr
birnapala
bjarney
doddiheimur
don
ernamaria
gattin
gledibankinn
gudmundurmagnusson
gurrihar
harpahrund
hronnsig
hross
ipanama
jenfo
jonaa
larahanna
nanna
neytendatalsmadur
olinathorv
omarragnarsson
palmig
rafgeymar
ragnarfreyr
rene
saran
skralli
stebbifr
thorsaari
toshiki
ugla
zordis






